Beint á leiðarkerfi vefsins

Pistlar

Konur, hvetjum hver aðra til dáða!

Konur, hvetjum hver aðra til dáða!

Eftir Rúnu Magnúsdóttur, hjá tengjumst.is 

Rúna MagnúsdóttirÞað er ekki að ástæðulausu að ég fagna nýjum möguleikum á kvennaslóðum.is.

Kvennaslodir.is gefur sérhæfðum konum möguleika á að verða sýnilegri í heimi fjölmiðla, gefi kost á sér inní stjórn fyrirtækjanna.   Ég vil óska umsjónarkonum vefsins til hamingju með nýtt útlit og nýja möguleika. 

Sem markþjálfi (ný-yrði fyrir coaching) með sérhæfingu í að markþjálfa konur og ekki síst konum í viðskiptum við að ná settu marki í lífi og starfi, hef ég brennandi áhuga á því að sjá hlutina fara af stað og ekkert á einhverjum snigla-hraða heldur bara.......beint í mark!

Nýr alþjóðlegur leitar og tengslavefur athafnakvenna hefur einnig litið dagsins ljós.  Tengjumst.is er íslenska heitið á honum en þar gefst athafnakonum tækifæri á að skrá sig, fyrirtækið sitt, vöru og þjónustu með fjölbreyttum og myndrænum hætti.  Takmarkið með Tengjumst.is  er að gera athafnakonur sýnilegri ekki bara innan Íslands heldur á alþjóðamarkaði.  Með því opnast spennandi möguleikar á viðskiptum til kvenna og þeirra á milli.   Að íslenskum konum frátöldum eru þegar komnar konur frá löndum svo sem Indlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi svo eitthvað sé talið, inná vefinn. 

Hugsunin er sú að Tengjumst.is verði vefur sem leitað verður inná til að finna vöru/þjónustu í stjórnun kvenna.   Næsta ferð á erlenda grund gæti verið tengd t.d. gistingu í eigu/rekstri kvenna, nú eða veitingahús, SPA meðferðin eða hvað það er sem leitað er eftir.  Jafnvel komnar með tengingu, á umræðutorgi eða spjalli, svo að dæmi séu tekin.  Tækifærin eru stór og smá allt eftir því eftir hverju við leitum.

Tengjumst.is og Kvennaslodir.is eru vissulega sterk tæki, en geta aldrei verið annað en lúinn og rykfallinn gagnagrunnur ef þessir vefir verða ekki nýttir til fulls,  það er undir okkur öllum komið að svo verði.  Hvet þig til að setja báðar slóðir inná "favorite" listann þinn í tölvunni.

Ég hef sjálf miklar væntingar til kvenna á Íslandi.  Sit í alþljóðanefnd FKA og hef í gegnum það starf sem og þátttöku minnar á alþjóðlegum kvennaráðstefnum séð að íslenskar konur skara nú þegar framúr á mörgum sviðum.  Ég hvet konur til að setja markið miklu hærra, og teygja sig út úr þæginda rammanum.  

Að mínu mati  eigum við að vera sú þjóð sem litið er upp til þegar kemur að jafnrétti kynjanna.  Við eigum að vera sú þjóð sem brýtur hið marg umtalaða glerþak.  Við eigum að vera sú þjóð sem kannast ekki einu sinni við þetta blessaða þak!  Við eigum að vera þjóðin sem alþjóðleg stjórnvöld, fyrirtæki, sem samtök og auðvitað fjölmiðlar líta upp til og sjá sem fyrirmynd! 

Vert er að spyrja sjálfan sig og aðra;  Ert þú tilbúin til að skara fram úr?  Hvernig getur þú náð þínu takmarki?  Ætlar  þú að bíða lengur?  Ef svo er, hvers vegna viltu bíða?  Hver og ein þarf að hugsa sinn gang og gera upp við sig hvernig hún vill sjá framtíðina.

Ég vil fá að nota tækifærið í lokinn til að hvetja konur til að styðja hvor aðra. 

Gefðu annari konu meðmæli í dag! Hrósaðu henni! Stuðlaðu að viðskiptum til hennar.  Stoppaðu neikvæða umræðu um aðra konu!  Brostu!

Þú veist að þú færð allt þetta jákvæða til baka og það margfalt!

"Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær"  - Nú sitjum við í flug gírinn!

Guðrún Magnúsdóttir
runa@tengjumst.is

 

 

 


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann