Kona í nærmynd
Anna Karlsdóttir
Starf: Lektor í landfræði og ferðamálafræði
Menntun: Cand.Sc.Soc - PhD. candidate
Sérhæfing: Umbreytingar atvinnuhátta í Norðurslóðalöndum, á strandsvæðum og dreifbýlum svæðum. Frumframfreiðslugreinar (sjávarútvegur, landbúnaður, veiðar, auðlindanýting) og áhrif þeirra á menningu, samfélag (félagshagfræði). Ferðamennska sem samfélagsumbreytandi afl.
Félagsstörf: Meðlimur í framtíðarlandinu, neyðarstjórn kvenna og í stjórn samtaka um bíllausan lífsstíl. Áhugamanneskja og iðkandi opinna upplýsinga um vistvæna kosti og kortagerð.
Áhugamál: Jafnrétti, lífshættir og atvinnuhættir fólks, listir og menning af öllu tagi, góðar bækur sem vekja til umhugsunar, matargerð og fallegar urtir.
Lífsmóttó: Wonder is the first of all passions (Descartes 1985)...
Fjölbreytileg áhugamál koma í veg fyrir að maður verði eins og maðurinn sem einungis hafði áhuga á nefum og gerðist sérfræðingur í snýtingum.
